Sama vinna í hverjum mánuði, á vefnum sem ég hýsi hvort sem er. Ekkert af þessu krefst þess að þú gerir neitt.
01
Vélrænar merkingar á hverri síðu
Hvers konar fyrirtæki, hvar það er, opnunartími, verð og þjónusta, skrifað í snið sem bæði Google og gervigreind lesa beint. Þetta er stærsti einstaki munurinn og hann sést hvergi á skjánum.
02
Google Business Profile og kortin
Skráningin yfirfarin með vefnum svo opnunartími, símanúmer og heimilisfang segi það sama á báðum stöðum. Ósamræmi þarna er algengasta ástæðan fyrir því að fyrirtæki birtist ekki á kortinu.
03
Staðreyndir í texta, ekki bara í haus
Opnunartími, verð og staðsetning þurfa að standa í textanum sjálfum. Vél sem á að svara „hvenær er opið“ getur ekki lesið það úr mynd eða úr PDF.
04
Mælt aftur í hverjum mánuði
Sama mæling og þú getur keyrt sjálf, keyrð aftur mánaðarlega, og það sem hefur dottið niður er lagað. Vefur sem var í lagi í mars er ekki sjálfkrafa í lagi í september.