kerfi://sndr
reykjavík --:--:--en[ hefja verkefni ]

verd/

Verðin standa hér svo þú getir reiknað áður en þú talar við mig.

Allar tölur hér eru byrjunarverð. Þú færð fast verð áður en ég byrja, og það stendur.

Öll verð eru án virðisaukaskatts.

Sjá mánaðarplönin

les vefir.verd

Vefir

Eitt verk, ein tala. Hönnun, texti, forritun, uppsetning og sýnileiki eru inni í verðinu en ekki seld ofan á það.

vefsida()

Vefsíða

frá149.000kr

Endurhönnun eða nýr vefur frá grunni, sama verð. Það er umfangið sem ræður tölunni, ekki hvort eitthvað var til fyrir.

  • Úttekt á því sem er til í dag, áður en nokkuð er hannað
  • Lifandi frumgerð sem þú skoðar í símanum þínum áður en smíði hefst
  • Hönnun, texti og forritun úr sömu smiðjunni
  • Uppsetning á þínu eigin léni með SSL og sjálfvirkum afritum
  • Gamlar slóðir fluttar rétt svo Google tapi ekki þræðinum

staerri_vefur()

Stærri vefur

frá390.000kr

Margar síður, full vefumsjón og fleiri tungumál. Verðið ræðst af umfanginu og þú færð töluna áður en byrjað er.

  • Vefumsjón: allt efni á vefnum er þitt að breyta, ekki bara nokkrir valdir reitir
  • Fleiri tungumál og fleiri gerðir af síðum
  • Vélræn merking svo leitarvélar og gervigreind lesi hvað þið eruð og hvar
  • Kennsla á kerfið og handbók á íslensku

serlausn()

Sérlausn

frá690.000kr

Vefur með kerfi undir: bókun, verslun eða tenging við það sem þið keyrið nú þegar.

  • Bókunarkerfi eða verslun smíðuð inn í vefinn sjálfan
  • Tengingar við kerfin sem þið notið nú þegar
  • Sérsmíðaðir hlutar sem eru ekki til í neinu sniðmáti
  • Prófað undir álagi áður en það fer í loftið

Það fer allt eftir stærð verkefnis og álagi en búast má við fullbúnum vef á þremur til sex vikum. Ég skrifa og yfirfer allan texta nema annað sé um samið.

les manadarlegt.verd

Mánaðarlegt

Vefurinn er byrjunin. Mánaðarplanið heldur honum lifandi, mælir hvort hann skilar og lagar það sem hann gerir ekki.

grunnur()

Grunnur

4.900kr á mánuði

Vefurinn bara virkar og þú þarft ekki að hugsa um hann.

  • Hýsing á jaðarneti svo vefurinn hleðst hratt hvar sem gesturinn er
  • SSL sem endurnýjar sig sjálft og sjálfvirk afrit
  • Vöktun og smærri lagfæringar þegar eitthvað brotnar
  • Þú talar við mig, ekki við þjónustuver

voxtur()

Vöxtur

29.900kr á mánuði

Vefurinn breytist með rekstrinum í staðinn fyrir að standa í stað.

  • Allt sem er í Grunni
  • Vefumsjón: þú ræður öllu efninu og ég sé um allt hitt
  • Ein minni viðbót á mánuði, ný síða eða nýr hluti
  • Mánaðarskýrsla um umferð og að hverju fólk er að leita

synileiki()

Sýnileiki

44.900kr á mánuði

Mælt í hverjum mánuði hvað vélar geta lesið af vefnum, og lagað það sem þær geta ekki.

  • Allt sem er í Vexti
  • Mánaðarleg mæling á vefnum með sömu aðferð og Mælingin hér að neðan
  • Lagfæringar á því sem mælingin finnur, ekki bara skýrsla um það
  • Fylgst með Google Search Console og Google skráningunni ykkar frá fyrsta degi

allt()

Allt

74.900kr á mánuði

Vefurinn, mælingin og bæði kerfin á einum stað. Sitt í hvoru lagi væri þetta 89.700 kr á mánuði, svo þú borgar 14.800 kr minna.

  • Allt sem er í Sýnileika
  • Gervigreindarsvar á vefnum sem svarar spurningum gesta allan sólarhringinn
  • Bókunarkerfið með, bókanir teknar á ykkar eigin vef
  • Svarið byggir eingöngu á ykkar eigin upplýsingum og skáldar ekkert
  • Forgangur á breytingar og beinn aðgangur að mér

Hvað fylgir hverju plani

Strjúktu til hliðar.

Samanburður á mánaðarplönunum fjórum: Grunnur, Vöxtur, Sýnileiki og Allt.
EiginleikiGrunnur4.900 kr á mánuðiVöxtur29.900 kr á mánuðiSýnileiki44.900 kr á mánuðiAllt74.900 kr á mánuði
Hýsing á jaðarneti, SSL og sjálfvirk afritInnifaliðInnifaliðInnifaliðInnifalið
Vöktun og smærri lagfæringarInnifaliðInnifaliðInnifaliðInnifalið
Vefumsjón: allt efnið er þitt að breytaEkki innifaliðInnifaliðInnifaliðInnifalið
Ein minni viðbót á mánuðiEkki innifaliðInnifaliðInnifaliðInnifalið
Mánaðarskýrsla um umferð og leitarorðEkki innifaliðInnifaliðInnifaliðInnifalið
Mánaðarleg sýnileikamæling á vefnumEkki innifaliðEkki innifaliðInnifaliðInnifalið
Lagfæringar á því sem mælingin finnurEkki innifaliðEkki innifaliðInnifaliðInnifalið
Search Console og Google skráningin vöktuðEkki innifaliðEkki innifaliðInnifaliðInnifalið
Gervigreindarsvar á vefnum allan sólarhringinnEkki innifaliðEkki innifaliðEkki innifaliðInnifalið
Bókunarkerfi á ykkar eigin vefEkki innifaliðEkki innifaliðEkki innifaliðInnifalið
Forgangur á breytingar og beinn aðgangur að mérEkki innifaliðEkki innifaliðEkki innifaliðInnifalið
Uppsagnarfrestur1 mánuður1 mánuður1 mánuður1 mánuður

Vefumsjón þýðir að efnið á vefnum er þitt: hver setning, hver mynd, hvert verð og heilar nýjar síður, hvenær sem er og án þess að spyrja mig. Hönnunin og uppbyggingin haggast ekki, og það er tilgangurinn frekar en takmörkunin: þú getur ekki brotið vefinn með því að uppfæra hann.

Engin binding. Þú segir upp með mánaðar fyrirvara og færð vefinn þinn með þér.

keyrir maelingin

Mælingin

Sláðu inn lénið þitt og sjáðu á nokkrum sekúndum hvað vél les af vefnum þínum. Engin bið, enginn fundur og ekkert netfang.

  • Sama mæling og ég keyri á hvern vef sem ég afhendi
  • Þú sérð stigin, hvað kostaði þau og hvað þarf að laga
  • Það sem ekki er hægt að mæla af vefnum er merkt ómælt, ekki dregið frá

les vidbaetur.verd

Viðbætur

Hugbúnaður sem er boltaður ofan á vef sem ég hýsi nú þegar. Þú bætir við þegar reksturinn kallar á það, ekki fyrr.

Aðstoðarmaðurinn, bókunarkerfið og eldhúsið eru fullsmíðuð og keyra á minni eigin þjónustu, tilbúin til uppsetningar fyrir þinn rekstur.

les hvad_raedur_verdinu()

Hvað hreyfir töluna

Byrjunarverðin eiga við um flest verkefni. Fjögur atriði geta fært þau upp, og þú veist hver þeirra eiga við um þig áður en þú skrifar undir.

011/4

Umfang

Fimm síður og fimmtíu síður eru ekki sama verkið. Fjöldi síðugerða ræður meiru en fjöldi síðna.

022/4

Efni

Ef til eru myndir og texti sem má nota þá styttist verkið. Ef ég skrifa allt og útvega myndefnið þá lengist það.

033/4

Tengingar

Bókunarkerfi, verslun, birgðakerfi eða bókhald sem þarf að tala við vefinn er sérstakt verk og verðlagt sér.

044/4

Tungumál

Íslenska og enska hlið við hlið er tvöfaldur texti og tvöföld yfirferð, ekki bara þýðing.

man verd

Spurningar um verð

Er þetta endanlegt verð?

Tölurnar hér eru byrjunarverð. Ég fer yfir verkefnið með þér, sendi þér fast verð og hef ekki vinnu fyrr en þú hefur samþykkt það. Verðið hreyfist ekki eftir á nema þú biðjir sjálf um eitthvað sem var ekki í samkomulaginu, og þá færðu töluna fyrir það fyrst.

Eru verðin með virðisaukaskatti?

Nei, öll verð á þessari síðu eru án virðisaukaskatts. Fyrirtæki fá virðisaukaskatt endurgreiddan, svo talan sem stendur hér er sú sem raunverulega kostar þig.

Þarf ég að vera í mánaðarplani?

Nei. Þú getur keypt vef og séð um hann sjálf annars staðar. Ég mæli með planinu því vefur sem enginn viðheldur eldist illa, en það er þitt val og verðið á vefnum breytist ekki við það.

Er binding á mánaðarplaninu?

Engin. Þú segir upp með mánaðar fyrirvara og færð vefinn þinn og efnið þitt með þér. Ég held ekki í viðskiptavini með samningi.

Ég er þegar með vef sem einhver annar gerði. Getur þú tekið við honum?

Oftast já, en ekki alltaf. Ég skoða hvernig hann er byggður og segi þér hreinskilnislega hvort það borgar sig að taka við honum eða byrja upp á nýtt. Ef svarið er að hann sé í lagi þá segi ég það líka.

Getur þú lofað að ég komi ofar á Google eða í svörum gervigreindar?

Nei, og enginn getur það. Það sem ég get gert er að gera vefinn þinn læsilegan fyrir vélar, mæla hvar þið standið og mæla það aftur í hverjum mánuði svo þið sjáið hvort það hreyfist. Ég sel vinnuna og mælinguna en aldrei sætið.

opnar verkefni

Segðu mér hvað þig vantar og ég sendi þér tölu.

Þú færð svar frá mér sjálfum, yfirleitt samdægurs. Engin sölusímtöl og enginn fundur nema þú viljir hann.