maeling/
Hvað les vélin af vefnum þínum?
Þegar ferðamaður spyr gervigreind hvar eigi að gista eða borða þá les vélin vefinn þinn eins og hún les allt annað. Sláðu inn lénið og sjáðu hvað hún finnur.
Ókeypis, engin bið og þú þarft ekki að gefa upp netfang.
les samanburd.json
Til samanburðar
Hlutfallstölurnar eru úr mælingu á 652 íslenskum ferðaþjónustuvefjum, keyrðri 30.8.2026 með nákvæmlega sömu aðferð og keyrir hér að ofan.
Hvernig er þetta mælt
Mælingin sækir forsíðuna þína eins og leitarvél sækir hana, án þess að keyra JavaScript, og les það sem kemur til baka. Hún skoðar vélrænar merkingar, staðreyndir í texta, titil og fyrirsögn, tungumál og robots.txt. Ef á forsíðunni vantar símanúmer, opnunartíma eða heimilisfang þá er tengiliðasíðan sótt líka áður en það er talið vanta.
Skalinn er 0 til 100. Vefurinn þinn einn og sér getur mest sagt til um 56 af þeim stigum. Hin 44 byggja á því hversu oft fyrirtækið er raunverulega nefnt þegar spurt er, og á umsögnum og skráningum annars staðar, og hvorugt er hægt að lesa af vefnum. Þau stig eru merkt ómæld, aldrei töpuð, því það væri ekki rétt að draga frá fyrir eitthvað sem við mældum ekki.
Við lofum engum árangri í svörum gervigreindar. Enginn stýrir því hvað slík kerfi segja, svörin eru ekki þau sömu í hvert skipti og þau ráðast meðal annars af því hver spyr og hvaðan. Það sem er hægt að vinna er að gera vefinn læsilegan fyrir vél, og það er það sem er mælt hér.
opnar naesta skref
Viltu að ég lagi það sem mælingin fann?
Sýnileiki er mánaðarplanið sem mælir vefinn upp á nýtt í hverjum mánuði og lagar það sem mælingin finnur, ekki bara skýrsla um það.