Fjórir fyrir vaktina, sem eldhúslykillinn opnar. Fjórir fyrir eigandann, sem eldhúslykillinn sér ekki.
01vaktin()
Vaktin
Öll tækin sem reitir með síðustu mælingu, hvenær og af hverjum. Grænt er innan marka, gult er ekki mælt í dag, rautt er frávik. Leyfi sem eru að renna út birtast efst.
02mottaka()
Móttaka
Birgir, vara, kælivara eða frystivara, hitastig við afhendingu og þrjú atriði sem á að líta á: umbúðir, geymsluþol, merkingar. Þetta er eyðublað 1 og rekjanleikinn í leiðinni.
03hitun()
Hitun og kæling
Kjarnhiti eftir eldun og endurhitun, hitaborðið, og kæling með klukku: um leið og þú slærð inn hvenær hún hófst segir skjárinn fyrir hvaða tíma maturinn þarf að vera kominn í 10 gráður.
04thrif()
Þrif og vaktaskil
Þrifaáætlunin sem gátlisti, daglegu verkin og þau vikulegu. Og vaktaskilin: hvað bilaði, hvað kláraðist, hver kvartaði, hvað var í kassanum. Ein færsla á dag, sú síðasta gildir.
05yfirlit()
Yfirlit
Hversu marga daga síðasta mánaðar voru öll tæki skráð. Hitastig hvers tækis yfir tíma, hæsta og lægsta mæling dagsins, með mörkin sem strik. Kælir sem hækkar viku eftir viku sést þar þremur vikum áður en hann gefur sig.
06fravik()
Frávik
Öll frávik tímabilsins á einum lista, með því sem var gert. Síðan sem eftirlitið biður fyrst um og eigandinn ætti að lesa á mánudögum.
07mappa()
Eftirlitsmappa
Veldu tímabil, ýttu á takkann. Sama uppröðun og eyðublöð Matvælastofnunar. Færsla sem barst kerfinu löngu eftir að hún var gerð, til dæmis úr kæliklefa án nettengingar, ber bæði tímamerkin.
08lyklar()
Tveir lyklar
Eldhúslykillinn er sleginn inn í símann sem hangir í eldhúsinu og opnar vaktina, ekkert annað. Eigandalykillinn opnar allt. Kerfið neitar að taka við eldhúslykli sem er sá sami og eigandalykillinn.
Þrjár myndir úr símanum, því þar er þetta notað, og þrjár af skjá eigandans. Teknar úr kerfinu í keyrslu, ekki teiknaðar.