gestir()
Finnst betur í leit
Þjónusta, staðsetning og upplýsingar settar fram þannig að fólk og leitarvélar geti fundið og skilið þær.
leitarsýnileikiSindri Már · sjö ár í faginu
smíða('vef', { fyrir: 'fyrirtækið þitt' })
Ég hanna, skrifa og smíða vefi fyrir íslensk fyrirtæki. Skýr kynning, auðveld leið að fyrirspurn eða bókun og fast verð áður en ég byrja. Þú talar beint við mig, frá fyrsta símtali til opnunar.
Hönnun, texti og smíði frá 199.000 kr án vsk.
Nýttmyndefni/
Ég kem til þín hvar sem er á landinu og tek nýtt myndefni fyrir vefinn, fyrir 69.000 kr til viðbótar við vef og mánaðarplan, án vsk. Þú átt myndefnið að fullu.
Nýttwoocommerce/
Fáðu lausn sem passar betur, virkar betur og kostar minna. Hafðu samband og sjáum hvað hægt er að gera.
keyra bókun
Gesturinn bókar hjá þér, þú staðfestir í símanum og gesturinn greiðir við komu.
Gesturinn bókar á vefnum þínum. Þú sérð nafn, fjölda, dagsetningar og það sem hann skrifaði sjálfur.
Þú samþykkir eða hafnar með einni snertingu og gesturinn fær svar strax. Greitt er við komu, eins og áður.
Herbergið er tekið frá um leið og beiðnin berst. Tveir sem bóka á sömu sekúndu fá ekki sama herbergið.
Dagatöl þeirra eru lesin á fimmtán mínútna fresti og þitt dagatal sent til baka fyrir hvert herbergi. Þú sérð hvenær það var síðast sótt.
Beinar bókanir mánaðarins og þóknunin sem þú sparaðir, svart á hvítu.
19.900 kr á mánuði, án vsk
[ skoða bókunarkerfið ]




keyra gervigreind
Byggir á upplýsingum sem þú samþykkir og getur flett upp verði og framboði í tengdu bókunarkerfi.
Gesturinn spyr um verð og fær töluna sem þú staðfestir, ekki ágiskun.
Hann les dagatalið þitt og svarar með lausum dögum og verði. Merkið sýnir að hann athugaði.
Hann er stilltur til að vísa óvissum spurningum áfram til þín. Þú samþykkir upplýsingarnar og prófar svörin fyrir birtingu.
Sama fyrirtæki, sömu staðreyndir, á tungumáli gestsins.
Hann setur upp beiðnina, gesturinn les hana yfir og staðfestir sjálfur. Hann bókar aldrei neitt upp á eigin spýtur.
14.900 kr á mánuði, án vsk
[ sjá aðstoðarmanninn ]
Aðstoðarmaðurinn sýnir fyrirfram samþykkt samtöl fyrir skáldað gistihús. Hann er ekki tengdur neinu hér og getur ekki bókað neitt.
keyra eldhús
Eyðublöð Matvælastofnunar sem app: hitastig, vörumóttaka, þrif og vaktaskil, og eftirlitsmappan með einum smelli.
Birgir, vara, hitastig, umbúðir. Skráð á staðnum í símanum, líka án nettengingar.
Hiti utan marka er ekki bara rauð tala. Kerfið tekur ekki við færslunni fyrr en viðbragðið er skráð.
Daglegi listinn og það sem bilaði, kláraðist eða kom kvörtun um, fært á milli vakta.
Hvaða tímabil sem er, tilbúið fyrir heilbrigðiseftirlitið, í stað möppunnar á kælinum.
frá 19.900 kr á mánuði, án vsk
[ sjá Eldhús ]



keyra vefsíðu
Sérhannaður vefur með texta og myndum sem þú ræður. Vefumsjón fylgir Vexti og hærri plönum eða pakkanum Stærri vefur.
Reitirnir eru merktir á íslensku. Þú uppfærir texta, myndir og verð í þeim efnisflokkum sem fylgja vefnum.
Þú bætir við efni í fyrirfram uppsettum efnisflokkum, til dæmis herbergjum eða fréttum.
Ekkert fer í loftið fyrr en þú ýtir á birta. Hönnunin og uppbyggingin haggast ekki.
vefsíða frá 199.000 kr, vefumsjón frá 19.900 kr á mánuði, án vsk
[ sjá vefumsjónina ]


keyra mælingu
Ókeypis mæling er fyrsta skrefið. Síðan getum við rætt í síma hvernig sýnileiki, texti, hönnun og bókanir vinna saman og hvaða lagfæringar nýtast þínum rekstri.
Allt að 15 síður lesnar á um 25 sekúndum. Engin skráning eða netfang.
Þú sérð heildareinkunn og stigaflokka. Ómæld atriði eru merkt sérstaklega. Ítarleg greining og lagfæringar eru sérþjónusta.
Skipulögð gögn, síður sem gervigreind les og Google-skráningin yfirfarin. Síðan er fylgst með árangrinum í hverjum mánuði.
mælingin ókeypis, Sýnileiki 34.900 kr á mánuði, án vsk
[ mæla vefinn minn ]


bera saman fyrir/eftir
Tvær leiðir til að kynna skáldað hótel. Vinstra megin vantar upplýsingar sem hjálpa gestinum að velja. Hægra megin geturðu skoðað útfærslu með skýrri kynningu og næsta skrefi.
Ekkert alvöru fyrirtæki er sýnt vinstra megin. Það er teiknuð mynd af algengum gömlum vef, ekki skjámynd af neinum sérstökum. Hótel Vör er skáldað.
sýna árangur/
Góður vefur svarar spurningum, byggir traust og styttir leiðina að viðskiptum. Veldu þau kerfi sem styðja við þinn rekstur.
gestir()
Þjónusta, staðsetning og upplýsingar settar fram þannig að fólk og leitarvélar geti fundið og skilið þær.
leitarsýnileikibókanir()
Gefðu gestum leið til að bóka beint hjá þér. SNDR tekur enga prósentu af bókuninni.
bókunarkerfisímtöl()
Aðstoðarmaður svarar algengum spurningum út frá þínum upplýsingum, líka eftir lokun.
gervigreindarsvarfyrstu_kynni()
Sýndu þjónustuna vel og gerðu verð, opnunartíma og næsta skref auðfundin. Gesturinn fær ástæðu til að halda áfram.
Google-skráningintími()
Þú samþykkir bókanir úr símanum og breytir texta, myndum og verðum, án þess að bíða eftir neinum.
stjórnborð og vefumsjónkostnaður()
Fast verð fyrir samþykkt umfang og skýr mánaðarplön. Þú sérð hvað er innifalið áður en þú ákveður.
verðskráinÞú hefur lagt vinnu í að byggja upp fyrirtækið þitt. Vefurinn á að sýna gæðin, svara því sem viðskiptavinurinn vill vita og gera honum auðvelt að taka næsta skref. Það er mitt verk.
Sindri Már, stofnandi
100+
vefsíður og frumgerðir hannaðar
20+
fyrirtæki í viðskiptum við mig
1
maður, og hann svarar í símann
Umsögn viðskiptavinar
Ég sá hæfileikana í þér frá byrjun og þess vegna kaus ég þig. Sköpunargáfan er mögnuð, afköstin gríðarleg og útkoman einfaldlega frábær. Trúðu mér, ég skoðaði ótal vefi hjá samkeppnisaðilum okkar og enginn þeirra kemst í hálfkvisti við verkin þín.
Þýtt úr ensku
„Ég, sem eigandi Hönnunar Studio Ísfeld, fékk Sindra Má hjá SNDR til að uppfæra vefsíðuna, útlitið og tæknilegar lausnir. Sindri hefur góðan skilning á því hvað hentar síðu innanhússarkitekts. Hann er með flott auga fyrir litum og formi og var fljótur að gera síðuna þannig að ég varð ánægð. Það var skemmtilegt að sjá hvernig hann sá mig sem hönnuð og hvernig ég nota form og liti, og það komst vel til skila á síðunni minni.“
„Við hjá Reyni bakara fengum SNDR til að hanna fyrir okkur nýja heimasíðu. Við fengum mjög gott tilboð sem stóðst upp á krónu. Öll vinnubrögð og samskipti voru upp á tíu og allt stóðst 100%. Við enduðum með flotta heimasíðu sem virkar vel og lítur mjög vel út. Við gætum ekki verið sáttari og okkur finnst meira en sjálfsagt að mæla með SNDR í bæði smærri og stærri heimasíðuverkefni.“
„Það hefur verið frábær upplifun að vinna með Sindra. Hann var snöggur að skila af sér mjög góðu verki, sem er strax farið að skila sér.“
sýna þjónustu/
Byrjum á vefnum og bætum við því sem nýtist rekstrinum. Ég sé um hönnun, texta og tæknina, svo þú getir einbeitt þér að viðskiptavinunum.
nýr_vefur()
Vefur sem byggir á þínu fyrirtæki, þínu fólki og því sem þú selur. Allt frá fyrstu hugmynd til birtingar.

endurhönnun()
Skýrari framsetning, betri upplifun í síma og einfaldari leið að fyrirspurn eða bókun. Gott efni úr gamla vefnum fær að halda sér.

hýsing()
Öryggi, afrit, vöktun og lagfæringar. Vefurinn einfaldlega virkar og ég svara þegar eitthvað kemur upp.

vefumsjón()
Þú breytir texta, myndum og verðum. Eða hringir í mig og lætur mig um það.

einnig smíðað eftir þörfum: Vefverslanir með íslenskum greiðslulausnum · Bókanir á herbergjum, borðum, ferðum og tímum, beint af vefnum og án þóknunar · Tilboðs- og fyrirspurnaform sem skila sér beint til þín · Matseðlar, verðskrár og vörulistar sem þú uppfærir sjálfur · Tengingar við bókunar-, greiðslu- og bókhaldskerfi sem þú notar nú þegar · Vefir á íslensku, ensku og fleiri tungumálum · Flutningur af Wix, WordPress, Squarespace og öðrum kerfum, með gömlu slóðirnar fluttar rétt · Nokkur fyrirtæki eða útibú á einum vef · Lendingarsíður fyrir auglýsingar og herferðir · Verkasöfn fyrir fagfólk, listafólk og iðnaðarmenn · Myndefni, stutt myndbönd og merki þegar á þarf að halda
keyra ferli --skref 3
Ég kynni mér allt sem til er um fyrirtækið þitt og skrifa textann sjálfur. Vefurinn fjallar um þig frá fyrsta degi, ekki um blindtexta sem á að skipta út seinna.

Hvert fyrirtæki fær sína eigin hönnun. Þú skoðar lifandi frumgerð og segir mér hvað þér finnst, í stað þess að rýna í skjáskot á glærum.

Hraður vefur, rétt uppsettur fyrir Google og í öruggri hýsingu. Eftir opnun er ég áfram til taks í síma.

handbók sndr
Vefur kostar frá 199.000 kr, hvort sem hann er nýr eða endurgerður. Stærri vefir og sérlausnir með bókun eða verslun kosta meira, og mánaðarplönin kosta frá 4.900 kr. Öll verð eru án vsk. Þú færð fast verð áður en ég byrja, og öll verðskráin er á verðsíðunni.
Já. Ég byrja á lítilli frumgerð af forsíðunni þinni, þér að kostnaðarlausu og án skuldbindingar. Hún er sýnishorn en ekki fullbúinn vefur. Þú skoðar hana og ákveður svo.
Ég. Enginn undirverktaki, enginn milliliður, ekkert þjónustuborð.
Það fer eftir stærð verkefnis og álagi, en búast má við fullbúnum vef á þremur til sex vikum. Við staðfestum umfang og afhendingartíma áður en vinnan hefst.
Upplýsingar um fyrirtækið, myndir og merki ef þú átt þau, og aðgang að léninu þegar kemur að birtingu. Ég skrifa og yfirfer allan texta nema annað sé um samið. Þú staðfestir staðreyndirnar og við finnum lausn á myndefninu.
Þú átt vefinn og lénið. Veljirðu hýsingu hjá mér kostar mánaðarplanið frá 4.900 kr án vsk. Vefumsjón og efnisvinna fylgja hærri plönum. Þú getur líka tekið vefinn með þér í aðra hýsingu.
hver_er_ég()
Ég er fæddur og uppalinn á Íslandi og hef smíðað vefi í sjö ár. Þetta byrjaði fyrir alvöru þegar ég fór að hjálpa til í fjölskyldufyrirtækinu og sá hvað góður vefur breytir miklu fyrir lítið fyrirtæki.
Ég sé um hönnun, texta, forritun og birtingu og get tekið að mér áframhaldandi hýsingu og viðhald. Þú færð einn tengilið sem þekkir bæði fyrirtækið þitt og vefinn.

Útlit og uppbygging mótast af því sem þú býður upp á og fólkinu sem þú vilt ná til.
Fallegur vefur sem skilar engu er bara mynd í ramma. Markmiðið er fleiri viðskiptavinir, ekki fleiri hrós.
Viðskiptavinurinn á að skilja hvað þú býður upp á, af hverju það skiptir máli og hvert næsta skref er.
Þú talar við þann sem smíðar. Ekkert þjónustuborð, enginn tengiliður á milli.
hefja verkefni
Segðu mér hvað þú býður upp á og hvað vefurinn á að gera betur. Ég svara sjálfur með tillögu að næsta skrefi og fast verð þegar umfangið liggur fyrir. Engin skuldbinding.