kerfi://sndr
reykjavík --:--:--en[ hefja verkefni ]

vefumsjon()

Efnið á vefnum er þitt. Hönnunin heldur sér.

Hverjum vef sem ég smíða fylgir umsjónarkerfi þar sem þú ræður öllu efninu: texta, myndum, verðum, opnunartímum og heilum nýjum síðum. Það sem þú kemst ekki í er útlitið og uppbyggingin, sem er ástæðan fyrir því að vefurinn lítur enn rétt út eftir tvö ár af breytingum. Skjámyndirnar hér að neðan eru úr kerfinu sjálfu.

raunverulegar skjámyndir, ekki hugmyndateikningar

cat ferli.txt

Þrjú skref, alltaf þau sömu

Það skiptir engu hvort þú ert að laga stafsetningarvillu eða hækka verð. Leiðin er sú sama og hún tekur innan við mínútu.

opna()1/3

Þú opnar það sem þú vilt breyta

Vinstra megin er listi yfir vefinn þinn: herbergin, algengar spurningar, fréttir, myndir. Þú smellir á það sem á að breytast. Enginn kóði, engar möppur.

breyta()2/3

Þú skrifar beint í reitinn

Reitirnir heita það sem þeir eru: nafn, verð, lýsing, mynd. Undir þeim stendur á íslensku hvað þeir gera og hvert breytingin skilar sér.

birta()3/3

Þú ýtir á Publish

Fyrr gerist ekkert. Breytingin situr sem drög þangað til þú birtir hana, og þá er hún komin á vefinn. Ekkert bið, engin tölvupóstsamskipti við mig.

ls skjámyndir/

Kerfið sjálft, skjámynd fyrir skjámynd

Gistihúsið Fell er tilbúið dæmi og herbergin í því eru ekki til. Allt annað er raunverulegt: þetta er kerfið sem er sett upp hjá þér, með þínu efni í staðinn.

sýnishorn

Þetta sérðu þegar þú skráir þig inn

Vinstri dálkurinn er vefurinn þinn í efnisyfirliti, ekki gagnagrunnur. Hann er raðaður eftir þínum vef, þannig að það sem er til í einu eintaki stendur efst og listarnir sem þú bætir við sitja fyrir neðan.

sýnishorn

Eitt herbergi, opið

Nafn, verð á nótt, fjöldi gesta. Undir verðreitnum stendur hvað talan gerir: hún uppfærist bæði á vefnum og í bókunarkerfinu, því þetta er sama skjalið og hvort tveggja les.

sýnishorn

Texti og myndir á sama stað

Lýsingin er venjulegur textareitur. Myndinni hendir þú inn með því að draga hana á svæðið. Ef þú vilt taka herbergi úr sölu tímabundið tekurðu hakið af, það hverfur af vefnum og eyðist ekki.

sýnishorn

Breyting er drög þangað til þú birtir

Hér er verðinu breytt í 24.900. Merkið verður appelsínugult, reiturinn merkist, og Publish hnappurinn lifnar við. Vefurinn sýnir enn gamla verðið á meðan. Þú getur hætt við.

sýnishorn

Og eftir að þú ýtir á hnappinn

Merkið verður grænt, hnappurinn slokknar og kerfið segir hvenær var birt. Nýja verðið er komið á vefinn og í bókunarformið á sama augnabliki.

sýnishorn

Listarnir sem þú bætir sjálf við

Algengar spurningar, fréttir og tilboð virka eins: þú bætir við færslu, skrifar í hana og birtir. Ef þú ert líka með gervigreindarsvarið les það þessar sömu spurningar, svo þú svarar á einum stað í stað tveggja.

cat mörk.txt

Hverju þú breytir og hverju ekki

Það er viljandi. Umsjónarkerfi sem leyfir þér að breyta öllu er umsjónarkerfi sem leyfir þér að brjóta vefinn.

þú sérð um

  • Texta, fyrirsagnir og lýsingar
  • Verð, opnunartíma og upplýsingar um staðinn
  • Myndir, hvort sem er að skipta út eða bæta við
  • Herbergi, vörur, spurningar, fréttir og tilboð
  • Að taka eitthvað úr birtingu án þess að eyða því

ég sé um

  • Útlit, letur og liti, svo vefurinn haldist heill
  • Uppbyggingu síðna og valmyndir
  • Hraða, öryggi og afrit
  • Nýja reiti í kerfið þegar þú þarft þá

cat tungumál.txt

Eitt sem er rétt að vita fyrir fram

Reitirnir sjálfir eru merktir á íslensku og leiðbeiningarnar undir þeim líka, því ég skrifa þá. Kerfið utan um þá er hins vegar á ensku: hnappurinn heitir Publish, ekki Birta, og Upload, ekki Hlaða upp. Sanity, kerfið sem liggur undir, kemur ekki með íslenska þýðingu og ég ætla ekki að lofa þér einhverju öðru. Í reynd eru þetta fimm eða sex orð sem þú lærir á fyrsta deginum, en þú átt að vita það áður en þú skrifar undir en ekki eftir á.

cat kennsla.txt

Þú færð kennslu, ekki bara aðgang

Að afhenda lykilorð og óska góðs gengis er ekki afhending.

01yfirferð()

Við förum yfir það saman

Ég sýni þér kerfið á þínum eigin vef með þínu eigin efni og þú gerir fyrstu breytinguna sjálf á meðan ég er á línunni.

02eftirá()

Þú mátt hringja eftir á

Ef eitthvað er óljóst þremur mánuðum seinna þá svara ég því. Það er innifalið, ekki útselt í tímum.

03eðaekki()

Eða ég geri það bara

Sumir vilja aldrei koma nálægt þessu og það er fullkomlega eðlilegt. Þá sendirðu mér línu og ég uppfæri. Kerfið er samt til staðar ef þú skiptir um skoðun.

Viltu prófa kerfið áður en þú ákveður?

Ég get gefið þér aðgang að þessu sama sýnishorni og þú færð að fikta í því án þess að skemma neitt.

Hafa samband