kerfi://sndr
reykjavík --:--:--en[ hefja verkefni ]

gervigreind/

Svaraðu gestinum meðan þú sinnir rekstrinum.

Opnunartímar, aðstaða, reglur og verð. Aðstoðarmaðurinn hjálpar gestum að fá svör á vefnum, líka þegar þú ert upptekinn. Með tengdu bókunarkerfi getur hann flett upp framboði og undirbúið beiðni sem gesturinn staðfestir.

14.900 kr á mánuði án vsk. Innifalið í planinu Allt.

Fá kynningu á aðstoðarmanninum

lesa hvað_skiptir_máli()

Hvað er öðruvísi við hann

Styrkurinn felst í upplýsingunum um þitt fyrirtæki og tengingunum sem hjálpa gestinum áfram.

011/3

Hann þekkir fyrirtækið þitt

Hann veit það sem þú segir honum, ekki bara það sem stendur á vefnum. Reglur um afbókun, hvað hentar börnum, hvar er best að leggja, hvað þú gerir þegar veðrið bregst. Þetta er þekking sem er annars bara til í höfðinu á þér og í símanum.

022/3

Hann er tengdur við kerfin þín

Hann flettir upp í dagatalinu og verðskránni og svarar með raunverulegum tölum. Þess vegna getur hann svarað „er laust um helgina?“ og „hvað kostar þetta?“ en ekki bara vísað á síðu sem gesturinn þarf sjálfur að lesa.

033/3

Skýr mörk og leiðin til þín

Hann er stilltur til að byggja á samþykktum upplýsingum og vísa áfram þegar svar vantar. Ég prófa raunverulegar spurningar með þér fyrir birtingu. Gervigreind getur gert mistök, svo mikilvægar upplýsingar og bókunartillögur þarf að yfirfara.

keyra sýnishorn

Svona lítur hann út

Þetta er aðstoðarmaðurinn sjálfur, sama forrit og viðskiptavinir fá uppsett. Fyrirtækið er tilbúið dæmi og upplýsingarnar eiga aðeins við það.

sýnishorn

Veldu spurningu og sjáðu hvernig aðstoðarmaðurinn birtir svarið. Samtölin sýna algeng erindi fyrir skáldað gistihús.

veldu spurningu

Enginn aðstoðarmaður er tengdur við þessa síðu. Svörin eru skrifuð fyrir fram og birt í forritinu sjálfu, þannig að ekkert hér getur verið uppspuni.

sýnishorn

Hann heilsar eins og starfsmaður

Hann þylur ekki upp hvað hann kann, hann spyr hvað hann geti gert fyrir þig. Það kemur skýrt fram efst og neðst í glugganum að þetta sé sjálfvirk aðstoð, ekki bara í einni setningu sem hverfur upp úr samtalinu. Tillögurnar koma úr þínum eigin algengu spurningum.

sýnishorn

Hann reiknar, hann giskar ekki

Merkið fyrir ofan svarið segir að hann hafi flett upp í verðskránni þinni. Talan er reiknuð í sama kerfi og bókunarformið notar og birtist í skýrum reit sem gesturinn getur ekki mislesið.

sýnishorn

Hvað er laust, beint úr dagatalinu

Sama merki, sama uppsetning. Hann les dagatalið, hann breytir því ekki, og gesturinn heldur áfram í bókunarbeiðni ef hann vill.

sýnishorn

Og þegar hann veit það ekki

Hér sérðu leiðina þegar upplýsingar vantar: gestinum er bent á að hafa samband. Þessi mörk eru prófuð með upplýsingum um þinn rekstur áður en aðstoðarmaðurinn fer í loftið.

sýnishorn

Spurt á ensku, svarað á ensku

Ferðamaðurinn spyr á ensku og fær svar á ensku, úr sömu upplýsingum. Þú þarft ekki að halda úti tveimur útgáfum af svörunum.

sýnishorn

Hann veit það sem stendur hvergi

Svarið hér er ekki af neinni síðu. Það er það sem þú sagðir honum um staðinn, sett upp þannig að gesturinn les það sem hann þarf og sleppir hinu.

lesa uppsetningu()

Svona er hann settur upp

Ég fer yfir vefinn og þær tengingar sem þarf. Síðan set ég aðstoðarmanninn upp og prófa hann með þér.

01útlit()

Hann lagar sig að vefnum

Litir, letur og form koma úr vefnum þínum. Hann keyrir í eigin hólfi svo hvorugt kerfið geti skemmt hitt.

02þjálfun()

Þú kennir honum

Við förum yfir reksturinn saman: verð, reglur, það sem gestir spyrja alltaf um og það sem hvergi stendur skrifað. Þú staðfestir hverja línu áður en hann fer í loftið.

03prófun()

Þú prófar hann fyrst

Þú spyrð hann tíu spurninga í einrúmi og sérð nákvæmlega það sem gestur myndi sjá. Ekkert fer í loftið fyrr en þú segir já.

04þak()

Þak á notkun

Takmörk á hverja fyrirspurn, á hverja tölvu á dag og á daginn í heild. Reikningurinn getur ekki farið úr böndunum.

lesa stöðu.gervigreind

Hvað hann gerir og hvað ekki

tilbúið

  • Svarar spurningum gesta út frá upplýsingunum þínum
  • Flettir sjálfur upp lausum dögum í dagatalinu þínu
  • Reiknar verð úr þinni eigin verðskrá
  • Svarar á íslensku, ensku og fleiri tungumálum sem við prófum fyrir þinn rekstur
  • Segir frá þegar hann veit ekki svarið og bendir á símanúmerið þitt
  • Lagar sig að útliti vefsins
  • Þak á notkun og kostnað frá fyrsta degi
  • Útbýr bókun í spjallinu sem gesturinn staðfestir sjálfur

Verð og framboð eru sótt úr tengdu kerfi. Gesturinn yfirfer tillöguna og sendir sjálfur bókunarbeiðnina; framboð er athugað aftur við sendingu. Aðstoðarmaðurinn tekur ekki greiðslur og breytingar eða afbókanir fara áfram til þín.

opna samtal

Prófaðu hann á undan gestunum.

Segðu mér hvaða spurningar taka mestan tíma. Saman skoðum við hvort aðstoðarmaður henti og hvaða upplýsingar og tengingar hann þarf.

Fá kynningu á aðstoðarmanninum