kerfi://sndr
reykjavík --:--:--en[ hefja verkefni ]

SNDR BÓKUN

Beinar bókanir á þínum vef. Engin þóknun.

Gesturinn sendir beiðni á vefnum þínum. Þú sérð framboð, verð og upplýsingar á einum stað og staðfestir í símanum. SNDR tekur 0% af bókunum. Þú greiðir fast mánaðargjald.

19.900 kr á mánuði án vsk. Innifalið í planinu Allt.

SNDR Bókun
Í dag
Raunverulegir skjáir · sýnigögn frá Dæmavík

Bókanir beint til þín

Gestir senda bókunarbeiðni á þínu léni. Þú staðfestir og sérð sjálfur um samskiptin.

Minna fram og til baka

Beiðnin, upplýsingarnar og svarið á sama stað.

Fast gjald. Engin þóknun.

19.900 kr á mánuði án vsk, óháð verðmæti bókana.

Sjáðu stöðuna og svaraðu beiðnum.

Veldu skjá og sjáðu hvernig þú heldur utan um bókanirnar. Stjórnborðið virkar í síma, spjaldtölvu og tölvu.

Í dag
Sjáðu komur, brottfarir og gesti í húsi. Efst birtist viðvörun ef bókun frá bókunarsíðu skarast við þína bókun.

NÝTT Í SNDR BÓKUN

Þrif, árekstrar, ferðaskrifstofur og snjallverð á sama stað.

Fyrir þig sem rekur mörg hús og þarft góða yfirsýn í daglegum rekstri. Á skjámyndunum sérðu eiginleikana í kerfinu.

Ein bókun opin
Ein bókun opinEfst sérðu viðvörun og flýtihnappa til að hringja, senda póst eða opna daginn. Þar fyrir neðan eru dvölin, gesturinn, verðið og ferillinn.
Ný bókun eftir húsagerð
Ný bókun eftir húsagerðÞú velur gerð og kerfið finnur fyrsta lausa húsið. Hér er hópur skráður frá ferðaskrifstofu.
Stillingar
StillingarHver tölvupóstur og hver eiginleiki hefur sinn rofa. Þú velur hvaða pósta kerfið sendir og hvaða eiginleikar eru virkir.
Snjallverð
SnjallverðÞú setur reglurnar og dæmið fyrir neðan sýnir verðið áður en þú vistar. Slökkt er á snjallverði þar til þú kveikir á því.

Þrif

Hús er merkt óhreint þegar gestirnir fara og umbúið þegar þrifum er lokið. Ræstingafólk fær eigin lykil sem veitir aðeins aðgang að þrifunum. Þrifalisti morgunsins berst í tölvupósti án nafna gesta.

Árekstrar

Ef bókun frá Airbnb eða Booking.com skarast við aðra bókun hjá þér birtist viðvörun efst á Í dag og þú færð tölvupóst. Dagatölin eru lesin reglulega, svo árekstrar koma ekki alltaf í ljós um leið og bókað er.

Húsagerðir

Hús af sömu gerð eru flokkuð saman. Gesturinn velur gerð og kerfið úthlutar fyrsta lausa húsinu. Tímalínan sýnir hve mörg hús eru laus af hverri gerð.

Ferðaskrifstofur

Skráðu bókun frá ferðaskrifstofu á hennar nafni og heildsöluverði. Hún telst ekki með beinum bókunum og gesturinn fær engan tölvupóst úr kerfinu.

Bókhald

Þú færð skrá fyrir tímabilið með virðisaukaskatti og gistináttaskatti aðgreindum, tilbúna fyrir bókarann. Skráin er yfirlit. Reikningana gefurðu áfram út í reikningakerfinu þínu.

Handvirk skráning

Skráðu bókun úr síma eða tölvupósti, eða hópbókun, á hús eða gerð. Kerfið lætur þig strax vita ef húsið er upptekið eða gestirnir eru of margir.

Stillingar

Sumir gististaðir þurfa engan póst um þrif, aðrir enga bókhaldsskrá. Hver tölvupóstur og hver eiginleiki hefur sinn rofa. Þú slekkur á því sem þú notar ekki. Þar velurðu líka hver fær hvaða póst og hvenær morgunlistinn fer, og uppfærir bókhaldsupplýsingarnar.

Snjallverð

Óbókuð nótt lækkar í verði eftir reglum sem þú setur. Þú velur afsláttarhlutfall eftir því hve stutt er í komu, lækkun á stakri nótt milli bókana og lágmarksverð. Slökkt er á snjallverði þar til þú kveikir á því. Þetta gildir aðeins um verð á þínum eigin vef. Verð á Airbnb og Booking.com breytast ekki, því iCal flytur aðeins upplýsingar um bókaðar nætur, ekki verð. Verð bókana sem þú skráir í stjórnborðinu og bókana frá ferðaskrifstofum lækkar ekki.

Hús og verð

Þú breytir nafni húss, gestafjölda, verði, heildsöluverði og lágmarksfjölda nátta án þess að hafa samband við mig. Ég sé áfram um breytingar á húsum með árstíðaverð fyrir þig.

NÝTT · BETA

Aðstoðarmaður í stjórnborðinu.

Þú skrifar til hans eins og til starfsmanns, á íslensku eða ensku. Hann flettir upp í kerfinu, reiknar út frá því sem hann finnur og undirbýr verkin. Ekkert breytist fyrr en þú staðfestir með einum smelli. Fyrir gistirekstur.

Beta: aðstoðarmaðurinn er í prófun og getur gert mistök. Lestu hvert kort yfir áður en þú staðfestir. Ekkert breytist án þín.

Kort sem bíður staðfestingar
Kort sem bíður staðfestingarLokun á öllum húsum, með því sem breytist og bókununum sem haldast. Ekkert gerist fyrr en þú smellir.
Tölvupóstur til gests, tilbúinn
Tölvupóstur til gests, tilbúinnSkrifaður á máli gestsins út frá bókuninni hans. Hnappurinn opnar póstinn í þínu eigin póstforriti, og hver uppfletting sést í dálkinum til hliðar.

Svarar úr kerfinu

Hverjir koma, fara og gista, hvað er laust, hvað það kostar, nýting tímabils, þrifalistinn og stillingarnar. Allt sótt og reiknað úr kerfinu sjálfu.

Morgunyfirlit

Á forsíðu stjórnborðsins: komur, brottfarir, þrif milli gesta og beiðnir sem bíða, skrifað út frá tölum dagsins.

Undirbýr verkin

Loka dögum og opna þá aftur fyrir allan reksturinn, færa bókun, staðfesta eða hafna beiðni, skrá bókun sem kom í síma, afbóka og merkja hús hreint. Hvert verk kemur sem kort sem sýnir nákvæmlega hvað breytist.

Póstur og svör

Tölvupóstur til gests á hans máli sem opnast í þínu eigin póstforriti, og drög að svari við skilaboðum gesta og umsögnum. Ekkert er sent úr kerfinu.

Verðábendingar

Bendir á vikur sem seljast illa. Verðinu breytir þú sjálfur í Stillingum.

Það sem hann sér

Nöfn gesta fara til gervigreindarinnar (Claude frá Anthropic) svo hún geti svarað. Símanúmer, netföng og kennitölur fara þangað aldrei. Þú getur slökkt á honum í Stillingum.

Hvernig það gengur fyrir sig

01

Gesturinn óskar eftir bókun

Á þínu eigin léni, í stíl við síðuna þína. Kerfið reiknar verðið, sýnir hvað er laust og tekur ekki við bókunarbeiðnum á lokuðum dögum.

02

Þú færð beiðnina í símann

Þú sérð nafn gestsins, fjölda gesta, símanúmer og skilaboð. Þú staðfestir eða hafnar beiðninni í símanum og gesturinn fær svar.

03

Gesturinn greiðir á staðnum

Þú innheimtir sjálfur samkvæmt þínum greiðslu- og afbókunarskilmálum. Kerfið tekur ekki kortagreiðslur á netinu og SNDR leggur engin færslugjöld ofan á.

Þú heldur tekjunum. Ég sé um kerfið.

Innifalið í planinu Allt. Einnig fáanlegt sem sjálfstæð viðbót.

SNDR tekur 0% af bókunum. Þú sérð um innheimtu. Gjöld greiðsluþjónustunnar þinnar geta bæst við. Vefsíðugerð og breytingar á vefsíðu eru verðlagðar sérstaklega.

19.900

kr á mánuði, án vsk.

  • Bókunarbeiðnir á þínum eigin vef
  • Staðfestingar, dagatal og ferill bókana
  • Handvirk skráning síma- og tölvupóstsbókana
  • Tenging við iCal-dagatöl, sett upp fyrir þig
  • Þrif, húsagerðir, ferðaskrifstofur, bókhaldsskrá, stillingar og snjallverð
  • Aðstoðarmaður í stjórnborðinu fyrir gistirekstur (Beta)
Fá kynningu á SNDR Bókun ↗
SNDR Bókun

Stjórnborðið á heimaskjánum.

Settu SNDR Bókun á heimaskjáinn og farðu beint í bókanir dagsins. Hvíta táknið með SNDR-stjörnunni er auðvelt að finna.

iPhone: Safari → Deila → Bæta á heimaskjá.

Android: Chrome → ⋮ → Setja upp forrit / Bæta á heimaskjá.

Stjórnborðið þarf nettengingu til að sækja framboð og vista breytingar.

Gott að vita.

Fyrir hvaða rekstur hentar þetta?

Fyrir gististaði, ferðir og þjónustu þar sem viðskiptavinur velur dag eða tíma og þú staðfestir beiðnina. Ég fer með þér yfir herbergi, framboð, verð og skilmála áður en ég set kerfið upp.

Hvernig er haldið utan um framboð?

Framboð er tekið frá um leið og beiðni berst og kerfið athugar það aftur við staðfestingu. Þú sérð hvað er laust og færð skýr skilaboð ef ekki er hægt að staðfesta bókun.

Get ég tengt Airbnb eða Booking.com?

Tengd iCal-dagatöl eru lesin á fimmtán mínútna fresti. Bókunarsíður sækja dagatalið þitt eftir eigin áætlun. Samstilling er því ekki samstundis og bókanir geta skarast milli kerfa. Ég fer með þér yfir hvernig þú staðfestir bókanir áður en tengingin er tekin í notkun.

Hvernig greiðir gesturinn?

Þú tekur sjálfur við greiðslunni, á staðnum eða eins og þú semur um við gestinn. SNDR Bókun sér um beiðnina og staðfestinguna. Þú ræður hvernig þú innheimtir og hvaða skilmálar gilda. Kortagreiðslur fara ekki fram í SNDR Bókun.

Hvað með bókun sem kemur í síma?

Þú skráir hana handvirkt í stjórnborðið. Hún tekur þá frá framboð eins og bókanir sem berast af vefnum.

Þarf ég að skipta út núverandi kerfi?

Ég skoða fyrst með þér hvað þú notar og hvað vantar. Ef þú þarft greiðslugátt eða fullbúinn rásastjóra fer ég með þér yfir hvaða lausn og tengingar henta áður en þú ákveður þig.

Sjáðu hvernig bókanir virka hjá þér.

Ég sýni þér hvernig gestur sendir bókunarbeiðni og þú staðfestir hana, svo þú sjáir ferlið áður en þú ákveður þig.

Ræðum bókanir · 845 1758 ↗