01
Lítil með vilja
Frumgerðin er stutt sýnishorn: forsíðan þín í grófum dráttum, með þínu nafni, litum og orðalagi. Hún er ekki fullbúinn vefur og ég segi það skýrt.
vefhonnun/
Fólk þarf að skilja hvað þú býður upp á áður en það hefur samband. Ég hanna vefinn, skrifa textann og smíða leiðina að fyrirspurn, kaupum eða bókun. Þú færð vef sem er mótaður fyrir fyrirtækið þitt, fast verð áður en ég byrja og einn mann sem ber ábyrgð á öllu verkinu.
Frumgerðin er ókeypis. Vefsíða frá 199.000 kr. Hýsing frá 4.900 kr á mánuði. Verð án vsk.
lesa fría_frumgerð()
Ég byrja á lítilli frumgerð, þér að kostnaðarlausu. Hún sýnir hvernig vefurinn gæti litið út og hvernig hann talar við viðskiptavini þína, svo þú ákveður út frá einhverju sem þú hefur séð en ekki út frá lýsingu.
01
Frumgerðin er stutt sýnishorn: forsíðan þín í grófum dráttum, með þínu nafni, litum og orðalagi. Hún er ekki fullbúinn vefur og ég segi það skýrt.
02
Ekkert er greitt og ekkert þarf að ákveða. Ef hún hentar ekki þakka ég fyrir mig og málið er búið.
03
Nafn fyrirtækisins og slóðina á núverandi vef ef hann er til. Meira þarf ekki til að byrja. Ef þú vilt halda áfram færðu fast verð fyrir allan vefinn áður en ég byrja á honum.
lesa tvær_leiðir()
Hvort sem þú ert að byrja eða vilt bæta núverandi vef, byrjum við á sama stað: hvað þarf viðskiptavinurinn að vita og gera?
01
Saman skilgreinum við þjónustuna, viðskiptavinina og næsta skref. Ég móta texta og hönnun út frá því, svo þú hafir skýran og traustan stað til að vísa fólki á frá fyrsta degi.
02
Ég skoða núverandi vef, efni og fyrirliggjandi umferðargögn. Ég held því sem nýtist og bæti það sem stendur í vegi fyrir skýrum skilaboðum og auðveldum viðskiptum.
lesa hvaða_rekstur()
Veitingastaður, kaffihús, arkitektastofa, verktaki, gisting, verslun eða þjónusta sem enginn hefur enn gert vef fyrir. Verkefnið er í grunninn alltaf það sama: að segja skýrt hvað þú gerir og gera næsta skref auðvelt. Ég byrja á því að setja mig inn í reksturinn og hanna út frá honum, svo ólíkur rekstur er ekki hindrun heldur einmitt ástæðan fyrir því að vefurinn er teiknaður frá grunni.
01
Ég set upp verslunina á WooCommerce eða Shopify, tengi vörur, greiðslur og sendingar, og hanna hana þannig að hún líti út eins og þitt fyrirtæki en ekki eins og þemað sem varð fyrir valinu.
02
Ef þú selur þegar á vefnum en kerfið er orðið flækja, flyt ég verslunina yfir á vef sem er skipulagður: vörurnar á sínum stað, verðin stemma og þú sérð sjálfur hvað er að gerast án þess að hringja í einhvern.
lesa hvað_fylgir()
Hönnun, texti, smíði og tæknilegur grunnur fyrir leit eru hluti af verkinu. Umfangið er skráð í tilboðinu áður en þú samþykkir.
01
Litir, letur, myndir og uppbygging vinna saman að því að sýna þitt fyrirtæki. Hönnunin leiðir gestinn að þeim upplýsingum og aðgerðum sem skipta máli.
02
Titlar, lýsingar, vefkort, skipulögð gögn og uppbygging sem Google og gervigreind lesa. Þetta er byggt inn í vefinn frá byrjun, ekki selt sem verkefni sex mánuðum eftir að hann fór í loftið.
03
Gesturinn á að geta lesið, hringt, sent fyrirspurn og bókað úr símanum. Ég prófa uppsetningu og helstu aðgerðir á litlum og stórum skjám fyrir afhendingu.
04
Ég set vefinn upp á þínu léni og tengi örugga hýsingu. Hýsing hjá mér er mánaðarþjónusta frá 4.900 kr án vsk; lénagjöld og annað umfang koma fram í tilboðinu.
05
Ég skrifa og yfirfer allan texta nema annað sé um samið. Þjónustan, ávinningurinn og næsta skref verða skýr, og þú staðfestir staðreyndirnar áður en birt er.
lesa staðalinn()
Orðið er notað um alla vefi og segir þess vegna ekki neitt. Hér er það sem ég á við, og allt á listanum er hægt að mæla á vefnum þínum í dag.
Mikilvægt efni kemur með síðunni þegar hún er sótt. Gestir og vefþjarkar þurfa því ekki að bíða eftir að forrit birti upplýsingar um þjónustu, verð eða opnunartíma.
Myndir eru skornar í réttar stærðir, letur er hlaðið fyrirfram og ekkert utanaðkomandi kóðasafn fylgir með nema það eigi erindi. Munurinn sést í mælingum sem hver sem er getur keyrt.
Upplýsingar um fyrirtækið og þjónustuna eru merktar í stöðluðu sniði sem leitarvélar geta lesið. Merkingarnar endurspegla það sem stendur á vefnum og styðja við skýra framsetningu.
Tungumálin fá hvort sína slóð sem leitarvél kemst inn á, ekki hnapp sem skiptir textanum á sömu síðu. Síða með tungumálahnappi getur ekki birst sérstaklega í enskri leit. Tvær slóðir geta það.
lesa spurningar()
Þetta er það sem fólk spyr í fyrsta símtali. Svörin eru þau sömu hér og í símanum.
Lítil frumgerð af forsíðunni þinni, hönnuð fyrir þitt fyrirtæki og sýnd þér áður en þú greiðir nokkuð. Hún er sýnishorn en ekki fullbúinn vefur og hún bindur þig ekki. Ef þú vilt halda áfram færðu fast verð fyrir allan vefinn áður en ég byrja á honum.
Það fer eftir stærð verkefnis og álagi, en búast má við fullbúnum vef á þremur til sex vikum. Stærri sérlausnir geta tekið lengri tíma. Afhendingaráætlun er ákveðin með þér áður en vinnan hefst.
Já, hvort tveggja, frá fyrsta degi og eftir að samstarfinu lýkur. Lénið er skráð á þitt fyrirtæki og vefurinn er þinn. Hýsingin er annað mál: hún er þjónusta sem ég rek mánaðarlega á meðan vefurinn er hjá mér. Þú átt vefinn, en hann þarf að liggja á vefþjóni hjá einhverjum. Ef þú vilt fara annað færðu allt afhent og getur sett hann upp þar.
Upplýsingar um fyrirtækið, myndir og merki ef þú átt þau, og einn tengilið sem getur staðfest staðreyndir og tekið ákvarðanir. Ég skrifa og yfirfer allan texta nema annað sé um samið.
Sjaldnast alveg. Ég les gamla vefinn fyrst: hvaða síður fá heimsóknir, hvaða texti stenst og hvaða slóðir eru þegar til í Google. Það sem er gott heldur sér og gömlu slóðunum er beint á þær nýju, svo þú tapir ekki því sem vefurinn hafði áunnið sér.
Já, frá Vaxtarplaninu (19.900 kr á mánuði) eða ef vefurinn er í pakkanum Stærri vefur. Þar breytir þú texta, myndum, verðum, opnunartímum og bætir við síðum, án þess að geta raskað hönnuninni. Breyting er drög þangað til þú birtir hana. Vefumsjón fylgir ekki Grunni, svo hafðu samband ef þú vilt bæta henni við.
Þú getur keypt vefinn og valið aðra hýsingu. Ef ég hýsi og rek vefinn fylgir mánaðarplan frá 4.900 kr án vsk. Vefurinn þarf hýsingu hjá einhverjum, en þú þarft ekki að vera hjá mér.
Þú segir upp, og þar sem hýsingin er hluti af mánaðarplaninu hættir vefurinn að liggja hjá mér. Ég afhendi þér lénið, efnið og vefinn sjálfan svo þú getir sett hann upp annars staðar eða fengið annan til þess. Enginn binditími og engin uppsagnargjöld, og þú missir ekki neitt. Ég vil frekar að fólk verði áfram af því að þjónustan er þess virði en af því að það kemst ekki út.
lesa stöðu.vefhönnun
Skýrt umfang, persónulegt samstarf og vefur sem er þinn.
fylgir
Ég mæli og bæti það sem hægt er að vinna í: efnið, tæknina og leiðina að viðskiptum. Staða á Google og birting í svörum gervigreindar ráðast einnig af þáttum utan vefsins og eru ekki tryggðar.
opna samtal
Segðu mér frá fyrirtækinu og markmiðinu. Ég byrja á lítilli frumgerð þér að kostnaðarlausu og sendi svo fast verð fyrir samþykkt umfang. Engin skuldbinding.