01
Síður um það sem fólk leitar að
Skýrir titlar, gagnlegar þjónustusíður og auðveld leið áfram hjálpa fólki að meta hvort þú sért rétti kosturinn. Tæknileg yfirferð tryggir að leitarvélar komist að efninu.
Viðskiptavinurinn leitar að þjónustu, staðsetningu og svörum. Ég bæti efni og tæknilega uppsetningu vefsins, yfirfer Google-skráninguna og fylgist með þróuninni. Markmiðið er skýrari leið úr leit yfir í fyrirspurn eða bókun.
Sýnileiki: 34.900 kr á mánuði án vsk. Vöxtur er innifalinn.
lesa hverjir_lesa()
Leitarvélabestun fyrir Google og vinna við sýnileika í gervigreind eiga margt sameiginlegt. Byrjum á upplýsingunum sem viðskiptavinurinn þarf.
01
Skýrir titlar, gagnlegar þjónustusíður og auðveld leið áfram hjálpa fólki að meta hvort þú sért rétti kosturinn. Tæknileg yfirferð tryggir að leitarvélar komist að efninu.
02
Hún les síðuna til að svara manneskju sem spurði á mæltu máli. Hún þarf að vita hvers konar fyrirtæki þetta er, hvar það er, hvenær er opið og hvað það selur, sagt þannig að vél geti tekið það úr textanum. Fallegur texti sem segir „við bjóðum upp á einstaka upplifun“ svarar engri af þeim spurningum.
03
Google getur unnið úr JavaScript, en vefþjarkar hafa mismunandi getu. Ég legg áherslu á að mikilvægar upplýsingar komi með síðunni þegar hún er sótt og séu ekki háðar frekari keyrslu.
lesa hvað_er_gert()
Ég fer yfir niðurstöður, forgangsraða með þér og vinn að lagfæringum. Þú staðfestir upplýsingar um reksturinn; ég sé um framkvæmdina.
01
Upplýsingar um fyrirtæki, staðsetningu og þjónustu settar í staðlað snið sem endurspeglar textann á vefnum. Það hjálpar leitarvélum að túlka upplýsingarnar rétt.
02
Opnunartími, símanúmer, heimilisfang og þjónusta samræmd við vefinn. Þú veitir aðgang og staðfestir upplýsingarnar; ég sé um yfirferðina.
03
Ég geri mikilvæg svör auðfundin í læsilegum texta. Matseðill eða verðskrá getur áfram verið til niðurhals, en gesturinn á líka að geta lesið lykilupplýsingarnar beint á síðunni.
04
Sama mæling og þú getur keyrt, keyrð aftur mánaðarlega, og það sem hefur dottið niður er lagað. Vefur sem var í lagi í mars er ekki sjálfkrafa í lagi í september.
lesa hringinn
Þrjú skref og það þriðja er ástæðan fyrir því að þetta er mánaðarplan en ekki verk sem klárast.
Byrjaðu á ókeypis einkunn eftir föstum viðmiðum. Allt að 15 síður eru lesnar á um 25 sekúndum, án skráningar eða netfangs.
Ég lagfæri það sem mælingin fann. Þú færð ekki skýrslu með verkefnalista, þú færð vefinn lagaðan.
Í næsta mánuði er sama mæling keyrð aftur. Þú sérð hvort talan breyttist, og ef hún breyttist ekki þá sérðu það líka.
lesa stöðu.sýnileiki
Mánaðarleg yfirferð tengir saman tæknilega úttekt, umferð og leitargögn sem eru tiltæk fyrir þinn vef.
tilbúið
Einkunn mælingarinnar lýsir læsileika vefsins. Hún er ekki staða á Google eða mæling á því hversu oft gervigreind nefnir fyrirtækið. Það getur tekið tíma að bæta sýnileika í leit og tiltekin niðurstaða er ekki tryggð.
opna samtal
Sendu mér lénið þitt og segðu hvaða þjónusta á að finnast betur. Ég fer yfir hvort mánaðarleg vinna eða afmarkað verkefni henti þér.