kerfi://sndr
reykjavík --:--:--en[ hefja verkefni ]

vefumsjónarkerfi Uppfærðu vefinn þegar reksturinn breytist.

Nýtt verð, ný mynd eða breyttur opnunartími. Með vefumsjón breytirðu efninu sjálfur í skýrum reitum og birtir þegar þú ert tilbúinn. Hönnunin heldur sér. Kerfið fylgir Vexti og hærri plönum eða pakkanum Stærri vefur.

raunverulegar skjámyndir, ekki hugmyndateikningar

Fá að prófa vefumsjónina

lesa ferli.txt

Þrjú skref, alltaf þau sömu

Opna, breyta, birta. Sama leið hvort sem þú lagar stafsetningu eða uppfærir verð.

opna()1/3

Þú opnar það sem þú vilt breyta

Vinstra megin er listi yfir vefinn þinn: herbergin, algengar spurningar, fréttir, myndir. Þú smellir á það sem á að breytast. Enginn kóði, engar möppur.

breyta()2/3

Þú skrifar beint í reitinn

Reitirnir heita það sem þeir eru: nafn, verð, lýsing, mynd. Undir þeim stendur á íslensku hvað þeir gera og hvert breytingin skilar sér.

birta()3/3

Þú ýtir á Publish

Breytingin geymist sem drög þar til þú birtir. Þá fer uppfærslan á vefinn, án þess að þú þurfir að senda mér textann í tölvupósti.

sýna skjámyndir/

Kerfið sjálft, skjámynd fyrir skjámynd

Gistihúsið Fell er tilbúið dæmi og herbergin í því eru ekki til. Allt annað er raunverulegt: þetta er kerfið sem er sett upp hjá þér, með þínu efni í staðinn.

sýnishorn

Þetta sérðu þegar þú skráir þig inn

Vinstri dálkurinn er vefurinn þinn í efnisyfirliti, ekki gagnagrunnur. Honum er raðað eftir vefnum þínum, þannig að það sem er til í einu eintaki stendur efst og listarnir sem þú bætir við eru fyrir neðan.

sýnishorn

Eitt herbergi opnað

Nafn, verð á nótt, fjöldi gesta. Undir verðreitnum stendur hvað talan gerir: hún uppfærist bæði á vefnum og í bókunarkerfinu, því þetta er sama skjalið og hvort tveggja les.

sýnishorn

Texti og myndir á sama stað

Lýsingin er venjulegur textareitur. Myndinni hendir þú inn með því að draga hana á svæðið. Ef þú vilt taka herbergi úr sölu tímabundið tekurðu hakið af og það hverfur af vefnum án þess að eyðast.

sýnishorn

Breyting er drög þangað til þú birtir

Hér er verðinu breytt í 24.900. Merkið verður appelsínugult, reiturinn merkist, og Publish-hnappurinn lifnar við. Vefurinn sýnir enn gamla verðið á meðan. Þú getur hætt við.

sýnishorn

Eftir að þú birtir

Merkið verður grænt og kerfið sýnir hvenær var birt. Vefurinn sækir uppfærða efnið; tíminn þar til það birtist fer eftir uppsetningu og skyndiminni.

sýnishorn

Listarnir sem þú bætir við

Algengar spurningar, fréttir og tilboð virka eins: þú bætir við færslu, skrifar í hana og birtir. Ef þú ert líka með gervigreindarsvarið les það þessar sömu spurningar, svo þú svarar á einum stað í stað tveggja.

lesa mörk.txt

Hverju þú breytir og hverju ekki

Þú hefur stjórn á efninu. Ég sé um hönnunina og tæknina, svo dagleg uppfærsla verði einfalt verkefni.

þú sérð um

  • Texta, fyrirsagnir og lýsingar
  • Verð, opnunartíma og upplýsingar um staðinn
  • Myndir, hvort sem er að skipta út eða bæta við
  • Herbergi, vörur, spurningar, fréttir og tilboð
  • Að taka eitthvað úr birtingu án þess að eyða því

ég sé um

  • Útlit, letur og liti, svo vefurinn haldist heill
  • Uppbyggingu síðna og valmyndir
  • Hraða, öryggi og afrit
  • Nýja reiti í kerfið þegar þú þarft þá

lesa tungumál.txt

Gott að vita fyrir fram

Reitir og hjálpartextar eru á íslensku. Sumir hnappar í Sanity eru á ensku, til dæmis Publish og Upload. Við förum yfir þá saman í afhendingu og þú prófar að uppfæra þinn eigin vef.

lesa kennsla.txt

Þú færð kennslu, ekki bara aðgang

Ég sýni þér það sem þú þarft að nota og er áfram til staðar ef spurningar koma upp.

01yfirferð()

Við förum yfir það saman

Ég sýni þér kerfið á þínum eigin vef með þínu eigin efni og þú gerir fyrstu breytinguna á meðan ég er á línunni.

02eftirá()

Þú mátt alltaf hringja

Ef eitthvað er óljóst þremur mánuðum seinna þá svara ég því. Það er innifalið, ekki rukkað í tímavinnu.

03ég_geri_það()

Eða ég sé um það

Þú getur líka sent mér breytingarnar. Við förum yfir hvað er innifalið í þínu plani og verðleggjum stærri verk áður en þau hefjast.

Viltu prófa kerfið áður en þú ákveður?

Ég get gefið þér aðgang að þessu sama sýnishorni og þú færð að fikta í því án þess að skemma neitt.

Fá að prófa vefumsjónina