personuvernd/
HVAÐ ÞESSI VEFUR VEIT UM ÞIG.
Hér kemur fram hvað er skráð, hvers vegna og hvaða þjónustuaðilar koma að vinnslunni.
Stutta útgáfan
- Stillingar fyrir útlit og samþykki geymast í vafranum. Samþykkissvar getur farið í vafraköku ef staðbundin geymsla virkar ekki.
- Engin Google Analytics.
- Vefurinn telur heimsóknir og smelli með eigin mæli sem notar engar vafrakökur: hvaða síða var opnuð, hvaðan komið var, gerð tækis og land. Engar IP-tölur eða aðrar persónuupplýsingar eru geymdar.
- Ef auglýsingamæling frá Meta er virk á vefnum fer hún ekki í gang fyrr en þú samþykkir hana.
- Engin gögn eru seld, leigð eða afhent öðrum.
- Form, mæling, vafrastillingar og hýsing eru útskýrð hér að neðan.
Þegar þú fyllir út samskiptaformið
Formið tekur nafn, fyrirtæki, netfang og skilaboð og sendir þau í tölvupóst til mín í gegnum eigin þjónustu á Cloudflare og tölvupóstþjónustuna Resend.
Ef þú kemur af merktum auglýsingahlekk geta merkingar um miðil, herferð og auglýsingu fylgt fyrirspurninni. Þær berast milli síðna í vefslóðinni án þess að vera vistaðar í vafrakökum eða geymslu vafrans. Þetta hjálpar mér að sjá hvaða auglýsing leiddi til fyrirspurnar.
Formið fer fyrst í gegnum litla þjónustu á Cloudflare sem ég rek sjálfur, og þaðan í tölvupóst í gegnum Resend. Báðir aðilar sjá innihaldið á leiðinni. Viljir þú sleppa því eru netfangið og símanúmerið neðst á hverri síðu og hvort tveggja endar á sama stað.
Ég geymi póstinn þangað til erindinu er lokið. Þú mátt biðja mig að eyða honum og þá geri ég það.
Þegar þú mælir vefinn þinn
Þú slærð inn lén eða vefslóð. Mælingin sækir allt að 15 opinberar síður ásamt robots.txt og vefkortum og reiknar einkunn út frá því sem tekst að lesa.
Niðurstaða fyrir læsilegan vef er geymd í allt að klukkutíma með slóðinni, svo hægt sé að svara endurtekinni mælingu án nýs lesturs.
Til að enginn geti keyrt mælinguna þúsund sinnum eru mælingar takmarkaðar við tuttugu á dag á hverja IP-tölu. Það sem er geymt er talan sjálf, ekki hvaða lén þú mældir, og hún þurrkast út eftir tvo sólarhringa.
Eldri netfangaskráningar úr mælingunni
Mælingin safnar ekki lengur netföngum. Hafir þú áður skráð þig fyrir viðbótarmælingu eru netfangið og lénið geymd í allt að sex mánuði frá skráningu og aðeins notuð í þeim tilgangi sem þú samþykktir.
Þú getur sent mér línu hvenær sem er og beðið um að skráningunni verði eytt fyrr.
Auglýsingamælingin frá Meta
Ef Meta-mæling er virk á vefnum er hún notuð til að meta árangur auglýsinga á Facebook og Instagram. Hún getur sett vafrakökur eftir samþykki þitt.
Hún fer ekki í gang fyrr en þú ýtir á Samþykkja. Ýtirðu á Hafna, eða svarar engu, sækir vefurinn ekkert frá Meta og engar vafrakökur verða til. Þetta eru ekki orðin tóm: kóðinn er ekki í síðunni fyrr en samþykkið liggur fyrir.
Með samþykki getur Meta fengið upplýsingar um síðuskoðun og atburði eins og mælingu eða innsenda fyrirspurn. Skilaboðatexti og innsláttarreitir eru ekki send sérstaklega í þessum atburðum. Meta getur einnig fengið slóð síðunnar, þar á meðal lén í mælingarslóð, og tæknilegar upplýsingar samkvæmt sinni vinnslu.
Þegar samþykkisborðinn er virkur geturðu breytt valinu með hnappnum Vafrakökur neðst á síðunni. Valið geymist í vafranum.
Það sem vafrinn þinn geymir
Staðbundin geymsla man litastillingu og samþykkisval þar til þú breytir því eða hreinsar vafrann. Ef ekki er hægt að geyma samþykkisval þar getur það verið geymt í vafraköku í allt að 180 daga.
Setugeymsla man hvort þú hafir séð opnunina eða lokað tilkynningu um nýjan vef, og hreinsast þegar setunni lýkur. Þessar stillingar eru notaðar til að stjórna framsetningu og samþykki á þessum vef.
Hýsingin
Vefurinn er hýstur hjá Cloudflare. Eins og hver einasti hýsingaraðili sér Cloudflare beiðnirnar sem berast, þar með talda IP-tölu, til að geta afhent síðuna og varist árásum.
Réttur þinn
Þú átt rétt á að vita hvað ég hef um þig, fá það leiðrétt og fá því eytt. Í reynd þýðir það að þú sendir mér línu og ég svara þér, því ég er einn maður með eitt tölvupósthólf en ekki heila deild.
Ef þér finnst ég ekki fara rétt með upplýsingarnar getur þú leitað til Persónuverndar, personuvernd.is.
Ábyrgðaraðili
Sindri Már Sigurðsson, SNDR Studio, Ísland.
Uppfært 13. september 2026.