kerfi://sndr
reykjavík --:--:--en[ hefja verkefni ]

maeling/

Hvað les vélin af vefnum þínum?

Sláðu inn lénið þitt og veldu fljótlega mælingu eða allan vefinn. Mælingin metur læsileika vefsins eftir föstum viðmiðum.

Mældu vefinn þinn ókeypis, án skráningar eða netfangs. Viltu fá mitt álit? Sendu mér niðurstöðurnar að mælingu lokinni og ég fer stuttlega yfir þær fyrir þig.

Hversu mikið á að lesa?

Allt að 15 síður. Um 25 sekúndur.

lesa fyrri_úttekt.json

Úr fyrri úttekt

0 krkostar mælingin. Engin skráning, ekkert netfang og enginn fundur
85%íslenskra ferðaþjónustuvefja höfðu enga merkingu um tegund fyrirtækis á þeim síðum sem voru lesnar
33%höfðu engan opnunartíma í texta eða merkingum á lesnum síðum
32%ná ekki helmingi þeirra stiga sem vefurinn einn getur skilað

Hlutfallstölurnar eru úr mælingu á 648 íslenskum ferðaþjónustuvefjum, keyrðri 27.9.2026 með sömu stigagjöf. Þessi úttekt er aðskilin frá samanburðinum við sambærilega vefi í þinni niðurstöðu.

lesa gátlistann

Hvað mælingin skoðar

Mælingin leitar að upplýsingum og tæknilegum merkjum sem hjálpa til við að lýsa fyrirtækinu. Niðurstaðan byggir á þeim síðum sem tókst að lesa.

01

Hvers konar fyrirtæki þetta er

Hvort læsilegur texti og skipulögð gögn lýsi því hvers konar fyrirtæki þetta er.

02

Hvar þú ert

Heimilisfang og staðsetning í texta sem hægt er að lesa, ekki bara kortapunktur í viðbót sem þarf forrit til að teikna.

03

Hvenær er opið

Opnunartími í texta eða skipulögðum gögnum á þeim síðum sem mælingin les.

04

Hvað þú selur og á hvað

Þjónustan eða herbergin talin upp, og verð þar sem þau eru til. Mælingin les HTML-síður, en sækir ekki PDF-skjöl.

05

Hvort vélin kemst inn

robots.txt, noindex, og hvort síðan er fullbúin þegar hún er sótt eða teiknar sig fyrst eftir að forrit hefur keyrt.

06

Hvaða tungumál þetta er

Hvort tungumálið er merkt, og hvort íslenska og enska eru hvort á sinni slóð eða á sömu síðunni með hnappi á milli.

Hvað hún skoðar ekki

  • Hún segir ekki hvar þú birtist í leitarniðurstöðum Google. Ég kaupi engin leitargögn og þyrfti að giska.
  • Hún les ekki umsagnir, skráningar eða annað sem stendur um þig annars staðar. Það er stór hluti af því hvort vél nefnir þig, og ekkert af því er á vefnum þínum.
  • Hún dæmir ekki hönnunina. Vefur getur verið fallegur en ólæsilegur fyrir vélar, og hann getur verið ljótur og fullkomlega læsilegur.
  • Hún spyr ekki gervigreind hvort hún mæli með fyrirtækinu þínu. Til þess þarf sérstaka mælingu með skilgreindum spurningum og endurteknum athugunum.
Hvernig er þetta mælt

Mælingin finnur síður í vefkorti og tenglum. Fljótleg mæling sækir allt að 15 þeirra á um 25 sekúndum. Heil mæling les allan vefinn, allt að 300 síður, og tekur eina til fjórar mínútur. Hvorug keyrir JavaScript og síður um þjónustu, verð og tengiliði fá forgang. Einkunn telst aðeins endanleg þegar nær allur vefurinn hefur verið lesinn, annars er hún merkt bráðabirgðaeinkunn. Myndir, PDF-skjöl og efni sem birtist aðeins eftir keyrslu JavaScript eru utan mælingarinnar.

Skalinn er 0 til 100. Vefurinn sjálfur getur mest skilað 62 af þeim stigum. Hin 38 byggja á því hversu oft fyrirtækið er raunverulega nefnt þegar spurt er, og á umsögnum og skráningum annars staðar, og hvorugt er hægt að lesa af vefnum. Þau stig eru merkt ómæld, aldrei töpuð, því það væri ekki rétt að draga frá fyrir eitthvað sem ég mældi ekki. Þar sem atriði á ekki við tegund starfseminnar, til dæmis opnunartími vefstofu, eru stigin merkt þannig og hvorki talin unnin né töpuð.

Ég lofa engum árangri í svörum gervigreindar. Enginn stýrir því hvað slík kerfi segja, svörin eru ekki þau sömu í hvert skipti og þau ráðast meðal annars af því hver spyr og hvaðan. Það sem ég get haft áhrif á er hversu læsilegur vefurinn er fyrir vélar, og það er það sem mælt er hér.

opna næsta_skref

Mælingin er bara byrjunin.

Ef fólk finnur þig ekki er sýnileikinn fyrsta verkefnið. En þegar fólk kemur inn á vefinn þarf hann líka að kynna þjónustuna vel, byggja traust og gera auðvelt að bóka eða hafa samband. Hringjumst á og förum yfir hvað hentar þér, frá markvissum lagfæringum til nýs vefs eða kerfa sem létta reksturinn.

Hringdu í mig · 845 1758

Skoða þjónustu og verð