01
Hvað kostar vefsíða á Íslandi?
Rétta svarið er að það fer eftir fyrirtækinu og því sem vefurinn á að gera. Hér sérðu hvað ræður því, ásamt allri verðskránni minni svo þú getir reiknað dæmið.
5. september 2026 · 7 mínútur
fraedsla/
Hvað á vefurinn að gera, hvað kostar hann og hvernig meturðu hvort hann skili? Hér eru svör sem hjálpa þér að ákveða næsta skref.
01
Rétta svarið er að það fer eftir fyrirtækinu og því sem vefurinn á að gera. Hér sérðu hvað ræður því, ásamt allri verðskránni minni svo þú getir reiknað dæmið.
5. september 2026 · 7 mínútur
02
Oftast er hann þarna. Hann finnst bara þegar leitað er að nafninu þínu, og það gerir enginn sem þekkir þig ekki nú þegar.
5. september 2026 · 6 mínútur
03
GEO er sýnileiki í svarinu sjálfu, ekki sæti á niðurstöðusíðu. Munurinn skiptir máli því vélin vitnar reglulega í síður sem voru aldrei ofarlega í leitarniðurstöðum.
5. september 2026 · 8 mínútur
04
Bókunarsíður koma með gesti og rukka fyrir það. Spurningin er hversu mikið beinar bókanir geta sparað í þínum rekstri, eftir allan kostnað.
5. september 2026 · 7 mínútur
05
Þetta er spurningin sem ræður verðinu, og hún er nánast aldrei spurð áður en fólk fer af stað. Hún er líka auðveld þegar hún er orðuð rétt.
5. september 2026 · 6 mínútur
Ný grein bætist við þegar spurningin kemur nógu oft. Ef þig vantar svar sem er ekki hér, hringdu.
handbók algengar_spurningar
Þetta eru spurningar sem eru of litlar til að eiga heila grein en koma upp í næstum hverju símtali. Svörin eru hér, óstytt.
Vefur tekur yfirleitt þrjár til sex vikur eftir umfangi og álagi. Stærri sérlausnir geta tekið lengri tíma. Við ákveðum afhendingaráætlun áður en vinnan hefst.
Já. Vefurinn, efnið og lénið eru þín. Veljirðu að fara í aðra hýsingu afhendi ég vefinn og við samræmum flutninginn. Mánaðarþjónusta hjá mér lýkur samkvæmt umsömdum uppsagnarfresti.
Vefumsjón fylgir Vexti og hærri mánaðarplönum eða pakkanum Stærri vefur. Þar breytirðu texta, myndum og verðum innan uppsetningar vefsins. Grunnur er hýsing og tæknilegt viðhald.
Já, ef vefurinn á að vera hýstur og rekinn hjá mér, og það er það sem mánaðargjaldið er. Eina leiðin fram hjá því er að þú takir vefinn og hýsir hann, sem er hægt en er þá þitt verk að halda honum uppi og öruggum.
Nei. Verðskráin er ekki kynningarverð og mánaðarverðið sem þú semur um hækkar aldrei, nema þú veljir sjálfur að færa þig upp í stærra plan. Umfang, mánaðargjald og skilmálar koma fram í tilboðinu áður en þú ákveður.
Stundum, og ég segi það hreint út þegar það á við. Ef beinagrindin er í lagi og vandinn er útlit, texti og sýnileiki, þá er hægt að vinna með það sem er til. Ef vefurinn er byggður á kerfi sem hægir á honum eða lokar á leitarvélar, þá er ódýrara að smíða upp á nýtt en að halda áfram að borga fyrir að laga.