SNDR ELDHÚS
Meiri tími í eldhúsinu. Minni tími í pappírsvinnu.
Skráðu hitastig, móttöku og þrif í símanum. Sjáðu hvað er búið, hvað vantar og hvað næsta vakt þarf að vita.
19.900 kr á mánuði án vsk.

Færri hlutir að muna
Tækin og þrifin á einum lista. Það sést strax hvað er eftir.
Minna að elta starfsfólk
Hver færsla fylgir þeim sem skráði hana. Vaktaskilin geymast með.
Minni leit að gögnum
Veldu tímabil og sæktu skráningarnar í einu skrefi.
01 / Vaktin
Vaktin, skref fyrir skref.
Stuttar skráningar þar sem vinnan fer fram. Yfirsýn fyrir eigandann á sama tíma.

Opnaðu vaktina. Sjáðu hvað bíður.
Veldu kæli eða frysti og skráðu mælinguna. Mörkin sjást við töluna; ef hún er utan marka skráirðu líka viðbrögðin.

Taktu á móti vörum og haltu skýra skrá.
Birgir, vara, hitastig og ástand sendingar fara í sömu færslu. Auðvelt að finna aftur hvað kom og hvort eitthvað var að.

Kláraðu þrifin og skilaðu vaktinni.
Dagleg og vikuleg verk eru á gátlista. Skráðu bilanir, það sem kláraðist og skilaboð til næstu vaktar. Fyrri vaktaskil varðveitast.
02 / Yfirsýnin
Yfirsýn yfir eldhúsið, hvar sem þú ert.
Sjáðu skráningar síðustu daga, frávik og hitastigsþróun. Opnaðu svo eftirlitsmöppuna fyrir tímabilið sem þú þarft. Gögnin nýtast bæði í daglegum rekstri og þegar þarf að taka þau saman.



Hver starfsmaður með sinn aðgang.
Eigandinn stofnar starfsfólk og afhendir hverjum sinn lykil. Skráningar eru sjálfkrafa merktar viðkomandi. Hægt er að afturkalla aðgang eins starfsmanns án þess að breyta aðgangi annarra.
Starfsfólk sér vaktina. Eigandinn stjórnar tækjum, þrifaáætlun, starfsfólki og útflutningi.
Eldhús á heimaskjánum.
Settu Eldhús á heimaskjá símans og opnaðu það eins og app. Eftir fyrstu innskráningu og niðurhal geturðu haldið áfram að skrá þótt nettengingin detti út.
- iPhone: Safari → Deila → Bæta á heimaskjá.
- Android: Chrome → ⋮ → Setja upp forrit / Bæta á heimaskjá.
Ósendar færslur geymast í tækinu. Opnaðu appið með nettengingu til að senda þær. Fyrsta uppsetning, eigandayfirlit og útflutningur þurfa net.
SNDR Eldhús
Einn staður fyrir allar skráningarnar.
Við förum saman yfir tækin þín, þrifaáætlunina og hver þarf aðgang. Þú færð kynningu á vinnuflæðinu áður en þú ákveður þig.
19.900
kr á mánuði, án vsk.
- Hitastig, móttaka, hitun og kæling
- Þrifaáætlun og varðveitt vaktaskil
- Starfsfólk með persónulegan aðgang
- Yfirlit, frávik og útflutningur gagna
Vantar líka vefsíðu? Vöxtur og Eldhús kosta saman 39.900 kr á mánuði án vsk, 4.900 kr minna en hvort í sínu lagi. Smíði vefsíðu er greidd sérstaklega. Sjá þjónustu og verð ↗
Gott að vita.
Þarf ég nýjan síma eða spjaldtölvu?
Eldhús virkar í nútímavöfrum á síma, spjaldtölvu og tölvu. Settu það á heimaskjáinn fyrir beinan aðgang. Mælingar eru skráðar af starfsfólki; kerfið les ekki sjálfkrafa úr hitamælum.
Hvað gerist ef netið dettur út?
Eftir fyrstu innskráningu og niðurhal opnast appið með síðustu samstilltu uppsetningu í allt að 7 daga. Daglegar færslur bíða á tækinu og sendast þegar appið er opið aftur með nettengingu. Þær eru greinilega merktar ósendar þar til þjónninn hefur tekið við þeim. Ekki hreinsa vafragögn áður en sendingu lýkur.
Get ég sótt gögnin mín?
Já. Eigandinn getur sótt skráningar fyrir valið tímabil, allt að 400 daga í hverjum útflutningi, sem gagnaskrá eða prentanlega möppu sem má vista sem PDF. Eldri skráningar haldast þótt tæki sé tekið úr notkun eða starfsmaður hætti.
Hvernig tengist þetta innra eftirlitinu okkar?
Skráningarnar byggja á eyðublöðum MAST og eru stilltar að rekstrinum þínum. Þú skilgreinir verklag, viðeigandi mörk og viðbrögð. Kerfið heldur utan um skráningarnar; það er ekki vottun eða staðgengill fyrir mat á matvælaöryggi.
Þarf vefsíðan mín að vera hjá SNDR?
Nei. Eldhús er sjálfstæð þjónusta og getur nýst þótt vefsíðan sé annars staðar. Það er ekki innifalið í planinu Allt.
Sjáðu Eldhús með eigin augum.
Segðu mér hvernig skráningum er háttað hjá þér í dag. Ég sýni þér hvernig tækin, þrifin og starfsfólkið geta unnið saman í Eldhúsi.
Ræðum Eldhús · 845 1758 ↗