kerfi://sndr
reykjavík --:--:--en[ hefja verkefni ]

sýna verk/akureyri-lodge

Akureyri Lodge

Nýr vefur frá grunni fyrir þrjár íbúðir í timburhúsi frá 1896 í Innbænum á Akureyri, með beinni bókun á vefnum.

Viðskiptavinur
Akureyri Lodge
Staður
Akureyri
Verk
Nýr vefur frá grunni
Í loftinu síðan

Verkefnið

Akureyri Lodge er timburhús frá 1896 í Innbænum á Akureyri með þremur íbúðum sem eru leigðar út hver fyrir sig. Eigendurnir, þau sömu og eiga Villa North, vildu eigin vef fyrir húsið, á ensku, með bókun beint á vefnum.

Hvað ég gerði

  • Hönnun og smíði vefsins frá grunni, á ensku, með síðu fyrir hverja íbúð.
  • Bókunargluggi með dagatali sem opnar Godo, bókunarkerfið sem eigendurnir nota, með réttri íbúð, dögum og fjölda gesta.
  • Síður um nágrennið og ferðir, með korti af gamla bænum og bókun ferða í gegnum TourDesk.
Bókunarglugginn á akureyrilodge.is: íbúðirnar þrjár, dagatal með þremur nóttum völdum og fjöldi gesta
Bókunarglugginn.
Síðan Around á akureyrilodge.is í síma, með korti af gamla bænum og staðunum í göngufæri
Nágrennið, í síma.

Umsögn

Ég sá hæfileikana í þér frá byrjun og þess vegna kaus ég þig. Sköpunargáfan er mögnuð, afköstin gríðarleg og útkoman einfaldlega frábær. Trúðu mér, ég skoðaði ótal vefi hjá samkeppnisaðilum okkar og enginn þeirra kemst í hálfkvisti við verkin þín.

Astrid Hauptmann, rekstrarstjóri Villa North og Akureyri Lodge (þýtt úr ensku)

opna vefinn · akureyrilodge.is

Lesa um vefhönnun

Fleiri verkefni

  • Riverbank: Nýr vefur og bókunarkerfið mitt fyrir fimm íbúðir á Hellu.
  • Villa North: Endurhönnun fyrir tvær einkavillur á Norðurlandi, með beinni bókun í gegnum GODO.
  • Lögfræðiþjónusta Akraness: Endurhönnun fyrir lögmannsstofu á Akranesi.

Skrifað 20. október 2026. Skjámyndirnar eru teknar af vefnum sjálfum sama dag.

Öll verkefni →